Willum Þór Þórsson heilbrigðisráðherra undirritaði í morgun samning Nýs Landspítala ohf. við litháenska útveggjaverktakann Staticus um hönnun, framleiðslu og uppsetningu á útveggjum á nýjan meðferðarkjarna. Samningurinn hljóðar upp á 47 milljónir evra, eða um 6 milljarða króna, þar sem uppsetningartíminn er áætlaður um 14 mánuðir og hefst í september 2023.

„Samningurinn er afrakstur 15 mánaða samkeppnisútboðsferlis og það lengsta sem Nýr Landspítali hefur komið að,“ segir í tilkynningu Nýja Landspítala.

Vinnuhópur frá Nýjum Landspítala, Corpus, sem eru hönnuðir spítalans, Buro Happold Engineering, Bird & Bird, Lex lögmönnum og Ríkiskaupum komu að gagnagerð og samkeppnisviðræðum. Staticus fékk þar hæstu einkunn úr matslíkani og verði. Um er að ræða fullnaðarhönnun, framleiðslu, flutning og uppsetningu útveggja.

Willum Þór Þórsson heilbrigðisráðherra:

„Þjóðin hefur beðið lengi eftir því að sjá nýja meðferðarkjarna Landspítalans rísa hér við Hringbraut. Meðferðarkjarninn er gríðarstórt hús. Til að setja það í samhengi þá er framkvæmdin við að reisa útveggina ekki aðeins sú stærsta innan Hringbrautarverkefnisins heldur líka stærsta einstaka framkvæmd sem ríkið ræðst í á árinu 2023. Það eru því spennandi tímar fram undan fyrir Landspítalann og heilbrigðiskerfið í heild.“

Ásbjörn Jónsson, sviðsstjóri framkvæmdasviðs Nýs Landspítala ohf.:

„Í dag er stór dagur hjá Nýjum Landspítala þar sem skrifað var undir einn stærsta framkvæmdasamning Nýs Landspítala frá upphafi vegna byggingar á nýjum meðferðarkjarna. Um er að ræða mjög stóran og viðamikinn samning við Staticus vegna útveggja á nýja meðferðakjarnann. Ég tel að Staticus hafi þá reynslu og sérfræðiþekkingu til að takast á við þetta risastóra verkefni. Umfang verkefnisins eru um 30.000 m² útveggir á bygginguna. Uppsetningin mun fara fram frá september 2023 og eru áætluð verklok í nóvember 2024. Við hjá Nýjum Landspítala höfum undirbúið verkið vel og erum full tilhlökkunar fyrir samstarfinu við Staticus og við þetta flókna verkefni.“

Meðferðarkjarninn, stærsta byggingin í uppbyggingu Nýs Landspítala, er hannaður út frá starfsemi bráða- og háskólasjúkrahúss. Áhersla er lögð á einfalt og skýrt fyrirkomulag ásamt greiðum leiðum milli starfseininga og annarra bygginga. Í meðferðarkjarnanum verður bráðamóttaka, gjörgæsla, skurðstofur, hjarta- og æðaþræðingar og myndgreining ásamt legudeildum og annarri stoðþjónustu svo sem dauðhreinsun og apótek fyrir sjúkrahúsið.