Heildarvelta á fasteignamarkaði á höfuðborgarsvæðinu nam 5.946 milljónum króna frá 14. til 21. ágúst sl. Þetta kemur fram í markaðsfréttum Þjóðskrár Íslands .

Fjöldi þinglýstra kaupsamninga á tímabilinu var 163. Þar af voru 132 samningar um eignir í fjölbýli, 26 samningar um sérbýli og fimm samningar um annars konar eignir en íbúðarhúsnæði.

Meðalupphæð á hvern samning var 36,5 milljónir króna.