Stuðningur ríkisins við garðyrkjubændur næstu sjö ár á að nema um 860 milljónum króna á ári samkvæmt nýjum búvörusamningi við garðyrkjubændur . Fultrúar ríkisstjórnarinnar, Bændasamtaka Íslands, Sambands garðyrkjubænda skrifuðu undir samninginn í dag. Samningurinn nær fram til ársins 2026 en endurskoðunarákvæði er í samningnum árið 2023. Auka á beinan stuðning við garðyrkjubændur um 200 milljónir á ári, eða samtals 1,4 milljarða króna á samningstímanum. Alls er ráðgert að stuðningur ríkisins nemi um 860 milljónum króna á ári, eða um 6 milljörðum króna til ársins 2026 á núverandi verðlagi.

Grænmetisframleiðsla verði aukin um 25%

Stefnt er að því að framleiðsla á framleiðsla á íslensku grænmeti um 25% árið 2023 miðað við meðalframleiðslu áranna 2017 til 2019. Það er meðal annars gert í því skyni að auka markaðshlutdeild innlendrar framleiðslu samkvæmt tilkynningu frá stjórnarráðinu . „Markmið samkomulagsins er meðal annars að stuðla að framþróun og nýsköpun í garðyrkjunni með áherslu á aðgerðir í loftslagsmálum,“ segir jafnframt í tilkynningunni.

Viðbótarféð, 200 milljónir króna á ári á m.a. að nýta til beingreiðslna vegna raforkukaupa, aðgerða í loftslagsmálum, þróunarverkefna og til fjölbreyttari ræktunar á grænmeti hér á landi.

Skoða að draga úr tollvernd

Samhliða undirritun samningsins á að fara fram greining á hagkvæmni þess að taka upp uppskerutengdar greiðslur vegna útiræktaðra garðyrkjuafurða og kartaflna gegn mögulegri niðurfellingu og/eða lækkun tollverndar. Niðurstöður þess á að meta við endurskoðun samningsins árið 2023.

Kolefnisjöfnun árið 2040

Í samkomulaginu segir að íslensk garðyrkja verði að fullu kolefnisjöfnuð eigi síðar en árið 2040 og stefnt að því að allar afurðir frá íslenskum garðyrkjubændum verði vottaðar sem kolefnishlutlausar fyrir þann tíma. Þetta verði m.a. gert með því að byggja upp þekkingu á losun og bindingu kolefnis, vinna að bættri meðhöndlun og nýtingu aðfanga og áburðar, minni sóun, markvissri jarðrækt, aukinni sjálfbærni og öðrum þeim aðgerðum er miða að því að kolefnisjafna búskap. Auka þurfi beina ráðgjöf og fræðslu til bænda um loftslagsmál og skoða á innleiðingu fjárhagslegra hvata fyrir íslenska garðyrkju til að ná enn frekari árangri í að auka bindingu.

Fyrirkomulagi á niðurgreiðslum á raforku verður breytt með þeim hætti að ylræktendum verða tryggðar beingreiðslur vegna lýsingar í stað niðurgreiðslu kostnaðar. Þetta á að gera til þess að stuðla að hagfelldari starfsskilyrðum greinarinnar. Hámarksstuðningur beingreiðslna vegna lýsingar á hvern framleiðenda verður mest 17,5% af þeirri heildarfjárhæð sem til ráðstöfunar er á viðkomandi rekstrarári. Fjármunir til beingreiðslna vegna flutnings- og dreifingarkostnaðar raforku verða 375 milljónir króna á árinu 2020.

Aukinn stuðningur á ýmsum sviðum

Ýmis nýmæli eru í samningnum. Nýr flokkur beingreiðslna vegna ræktunar á öðrum grænmetistegundum en gúrkum, paprikum og tómötum bætist við. Heildarfjárhæð verður 37 milljónir króna á ári og hefjast greiðslur á þessu ári.

Þá á að veita sérstaka jarðræktarstyrkir til útiræktunar á grænmeti og garðávöxtum til manneldis. „Ekki er greitt framlag fyrir ræktun undir einum hektara. Þar er meðal annars um að ræða allar afurðir til manneldis sem vaxa neðanjarðar eins og kartöflur, rófur, gulrætur, næpur og aðrar sambærilegar afurðir. Afurðir ræktaðar ofanjarðar, s.s. blómkál, hvítkál, kínakál, rauðkál og aðrar sambærilegar afurðir geta einnig notið jarðræktarstyrkja en þar verður upphæð fyrir hvern ræktaðan hektara hærri, þar sem kostnaður við þá framleiðslu er umtalsvert meiri. Framlög til jarðræktarstyrkja verða 70 milljónir króna á ári,“ segir í tilkynningunni frá ráðuneytinu.

Þá hyggst atvinnuvega- og nýsköpunarráðuneytið greiða þróunarfé til garðyrkjuverkefna með það að markmiði að styðja við fræðslu, rannsóknir, leiðbeiningarþjónustu og framþróun í garðyrkju. Styrkhæf verða; ráðgjafarverkefni, kynningarverkefni, rannsókna- eða tilraunaverkefni, vöruþróunarverkefni, verkefni sem miða að því að draga úr losun gróðurhúsalofttegunda og endurmenntunarverkefni.

Einnig á að auka framlög til aðlögunar að lífrænum framleiðsluháttum í garðyrkju með það að markmiði að aðstoða framleiðendur við að uppfylla þær kröfur sem lífræn garðyrkjuframleiðsla hefur í för með sér og auka framboð slíkra vara á markaði.

Atvinnuvega- og nýsköpunarráðuneytið stefnir að því að setja á fót gagnagrunn og mælaborð sem heldur utan um upplýsingar um matvælaframleiðslu á sviði landbúnaðar á Íslandi, þ.m.t. garðyrkju. Það er sagt nauðsynlegt til að hafa yfirsýn yfir framleiðslu, sölu og birgðir í landinu m.a. vegna fæðuöryggis og að auka gegnsæi. Upplýsingarnar eiga endurspegla birgðastöðu innlendra garðyrkjuafurða og verða uppfærðar með reglulegu millibili innan hvers árs.

Kristján Þór Júlíusson, sjávarútvegs- og landbúnaðarráðherra:

„Þessi samningur markar tímamót fyrir íslenska garðyrkju. Stærsta breytingin er sú að við erum að stórauka framlög til að niðurgreiða flutnings- og dreifingarkostnað rafmagns og auka við jarðræktarstyrki til að stuðla að fjölbreyttari ræktun á grænmeti hér á landi. Með því erum við að skapa forsendur til að auka framleiðslu á íslensku grænmeti um 25% á næstu þremur árum og auka þannig markaðshlutdeild innlendrar framleiðslu. Til viðbótar eru í samkomulaginu fjölmörg atriði sem munu styrkja íslenska garðyrkju og allan íslenskan landbúnað til lengri tíma, m.a. með því að setja á fót mælaborð fyrir landbúnaðinn. Samantekið er ég afskaplega stoltur og ánægður með þetta samkomulag. Við erum að fjárfesta í framtíðinni og grípa þau tækifæri sem við okkur blasa í íslenskri garðyrkju.“

Gunnar Þorgeirsson, formaður Bændasamtaka Íslands:

„Það er fagnaðarefni að búið sé að ljúka endurskoðun garðyrkjusamningsins á þessum undarlegu tímum. Mikill skilningur er meðal neytenda að styrkja íslenska framleiðslu. Í samningnum vega þyngst áhrif hans á útiræktunina. Við sem framleiðendur höfum haft miklar áhyggjur af þeirri framleiðslu undanfarin ár, þar sem of fáir bændur hafa séð sér hag í að stunda hana. Hart hefur verið sótt að framleiðslunni á grundvelli afnáms tolla og takmarkaðs stuðnings. Sá skilningur samningsaðila og þær áherslur sem lúta að tollvernd íslenskrar garðyrkju, lífrænni ræktun og  umhverfismálum eru jákvæðar. Mikil sóknarfæri eru í garðyrkju almennt og ekki síst hér á okkar hreina landi þar sem við njótum þeirra forréttinda að vökva okkar afurðir með hreinu drykkjarvatni. Eins og segir í slagorðum garðyrkjubænda: „Íslenskt grænmeti, þú veist hvaðan það kemur“ og „blóm gera kraftaverk“.