Sex nýir loftferðasamningar voru áritaðir fyrir hönd Íslands á ráðstefnu Alþjóðaflugmálastofnunarinnar um loftferðasamninga ICAN 2009, sem fram fór  í Istanbúl í Tyrklandi 28. september til 2. október.

Þetta kemur fram í tilkynningu frá utanríkisráðuneytinu en samningarnir sex eru við Aserbaídsjan, Dóminíska lýðveldið, Kúveit, Sýrland, Túrkmenistan og Víetnam.

Í tilkynningunni kemur fram að markmið ráðstefnunnar var að skapa aðildarríkjum stofnunarinnar vettvang til viðræðna um gerð tvíhliða loftferðasamninga. Fulltrúar utanríkis- og samgönguráðuneyta á ráðstefnunni voru þeir Helgi Ágústsson sendiherra og Karl Alvarsson skrifstofustjóri. Hittu þeir fulltrúa fjölmargra ríkja en auk áritananna voru formlegir fundir með fulltrúum Jamaíka, Kirgisía og Pakistan.

Þá kemur fram að markmið samninganefndar Íslands í öllum tvíhliða viðræðum um loftferðasamninga hefur verið að tryggja flugrekendum eins mikið frelsi til að veita þjónustu milli samningsríkja eins og hægt er.

„Tvíhliða samningar sem þessir snúast fyrst og fremst um gagnkvæmar heimildir til áætlunarflugs en um leið hefur verið leitað eftir samningum sem heimila óreglubundið flug auk farmflutninga. Í flestum samninganna hefur náðst verulegur árangur í þessa átt sem opnar ný tækifæri fyrir íslenska flugrekendur til áætlunarflugs eða óreglubundins flugs með farþega og vörur,“ segir í tilkynningunni.

Alls hafa nú verið gerðir sjö loftferðasamningar á þessu ári en áritaður var samningur við Tyrkland í vor.