Sex aðilar hafa skilað inn gögnum til Vegagerðarinnar vegna forvals Vaðlaheiðarganga. Aðilarnir eru ÍAV/Marti, Ístak, Metrostav-Suðurverk, Norðurverk, Per Aarsleef-JKP JV og Leonhard Nilsen & Sønner AS.

Vegagerðin aulýsti, fyrir hönd Vaðlaheiðarganga hf., þaÍnn 28. mars sl. eftir þátttakendum í forval vegna jarðganga milli Eyjafarðar og Fnjóskadals ásamt byggingu tilheyrandi forskála og vega.

Í tilkynningu frá Vegagerðinni segir að farið verði yfir gögnin á næstu vikum og reikna megi með að opna megi tilboð í verkefnið seint í ágúst eða september, að loknu útboði með þátttöku þeirra sem standast útboðskröfur.