Sextán starfsmönnum á skrifstofum Icelandair í Reykjavík hefur verið sagt upp. Vísir greindi fyrst frá en Elísabet Helgadóttir segir í samtali við fréttamiðilinn að uppsagnirnar séu hluti af skipulagsbreytingum Icelandair sem ráðist hefur verið í undanfarna mánuði.

„Það ber að hafa í huga að Icelandair er stórt fyrirtæki á samkeppnismarkaði með á fimmta þúsund starfsmenn, þar af rúmlega 500 manns á skrifstofu félagsins í Reykjavík,“ segir Elísabet.