Íbúðalánasjóður og lífeyrissjóðirnir eiga rúmlega helming útlána fjármálafyrirtækja til heimila landsins. Morgunblaðið greinir frá umsögn Samtaka fjármálafyrirtækja (SFF) til efnahags- og viðskiptaráðuneytisins þar sem umsvif opinberra aðila á þessum markaði eru gagnrýnd. Þá segir í umsögninni að æskilegt sé að dregið verði úr þeirri „skuggabankastarfsemi“ sem felist í beinum lánveitingum lífeyrissjóða.

Samtökin segja að umsvif ríkisins veiki eignasafn annarra lánveitenda á markaði og auki kostnað sem fellur á ríkið vegna þeirrar áhættu sem stafar af lágu eiginfjárhlutfalli Íbúðalánasjóðs, undanþágu sjóðsins frá flestum opinberum gjöldum og lágri arðsemi eigin fjár sem bundið er í sjóðnum. Telja samtökin engin rök „til þess að ríkið þurfi að annast almenn íbúðalán í einu ríkasta landi heims“.