Atkvæðagreiðslu um samkomulag Starfsgreinasambands Íslands f.h. aðildarfélaga sinna, við fjármálaráðherra f.h. ríkissjóðs, um breytingar á kjarasamningi aðila, sem skrifað var undir 26. maí s.l., lauk nú upp úr hádeginu.

Niðurstaðan er sú að samkomulagið var samþykkt með miklum meirihluta greiddra atkvæða.

Þetta kemur fram á vef SGS.

Alls voru 2.139 einstaklingar á kjörskrá.

Atkvæði greiddu 677 eða 31,7%.  Já sögðu 616 eða 91,0%. Nei sögðu 55 eða 8,0%.

Auðir og ógildir seðlar voru 6 eða 1,0%.