Starfsgreinasambandið (SGS) hefur tilkynnt um víðtækar verkfallsaðgerðir sem bresta munu á í lok þessa mánaðar og í maímánuði, hafi ekki náðst samningar fyrir þann tíma. Í tilkynningu til fjölmiðla segir að um sé að ræða harðari og umfangsmeiri aðgerðir en áður höfðu verið kynntar. Í stað staðbundinna vinnustöðvana þá hefjast allsherjarverkföll. Aðgerðirnar ná til yfir 10 þúsund félagsmanna aðildarfélaga SGS og munu hafa áhrif á fjölda vinnustaða um land allt. Atkvæðagreiðsla vegna verkfallsboðunarinnar hefst mánudaginn 13. apríl kl. 8.00 og henni lýkur viku síðar á miðnætti 20. apríl.

Í tilkynningunni segir að ástæðan fyrir þessum fyrirhuguðu hertu verkfallsaðgerðum Starfsgreinasambandsins séu m.a. tilraunir Samtaka atvinnulífsins til að tefja fyrir atkvæðagreiðslum launþegasamtaka og mikill baráttuvilji meðal félagsmanna aðildarfélaga Sambandsins. Upphaflega var áætlað að hefja vinnustöðvanir um miðjan þennan mánuð en vegna úrskurðar Félagsdóms varð að hefja atkvæðagreiðslu um aðgerðirnar upp á nýtt.

Í tilkynningunni er haft eftir Birni Snæbjörnssyni, formanni SGS, að fólk sé orðið reitt. Hanni vonist til þess að forðast megi verkföll, því þau eigi alltaf að vera neyðarrúræði. Það sé hins vegar enginn bilbugur í hans fólk og að þau séu búin undir að þetta gæti orðið löng orrusta.

Skipulag verkfallsaðgerðanna:

  • 30. apríl 2015 - Allsherjar vinnustöðvun frá klukkan 12:00 á hádegi til miðnættis sama dag.
  • 6. maí 2015 - Allsherjar vinnustöðvun frá miðnætti til miðnættis (allur 6. maí).
  • 7. maí 2015 - Allsherjar vinnustöðvun frá miðnætti til miðnættis (allur 7. maí).
  • 19. maí 2015 - Allsherjar vinnustöðvun frá miðnætti til miðnættis (allur 19. maí).
  • 20. maí 2015 - Allsherjar vinnustöðvun frá miðnætti til miðnættis (allur 20. maí).
  • 26. maí 2015 - Ótímabundin vinnustöðvun hefst á miðnætti aðfaranótt 26. maí 2015.