Royal Dutch Shell hefur lýst yfir áhuga á að fjárfesta í gasframleiðslu í Írak og að setja upp lagnir sem leiði gas til Evrópu í gegnum Tyrkland, segir talsmaður Olíuráðuneytis Íraks.

Shell hafði átt í viðræðum um gasframleiðslu við fyrrum forsætisráðherra Íraks, Ayad Allawi, og munu nú vera að reyna að hefja þær viðræður að nýju við ríkisstjórn Íraks, segir talsmaðurinn.