Áskoranir og tækifæri í íslenskum framleiðsluiðnaði er yfirskrift Framleiðsluþings Samtaka iðnaðarins sem haldið verður í Norðurljósum í Hörpu á morgun miðvikudaginn 12. febrúar kl. 14.00-16.00.
Á þinginu verður kastljósinu beint að helstu áskorunum sem íslensk framleiðslufyrirtæki standa frammi fyrir um þessar mundir. Horft verður sérstaklega til tækifæra í nýsköpun í umhverfis- og loftslagsmálum.
Ný hugsun og ný tækni geta ráðið úrslitum um framtíðarvöxt framleiðsluiðnaðar á Íslandi.
Fundarstjóri er Stefán Magnússon, markaðsstjóri CCEP og formaður Framleiðsluráðs SI.
Dagskráin verður sem hér segir:
- Setning – Guðrún Hafsteinsdóttir, formaður SI
- Áskoranir og sóknarfæri í iðnaði – Sigurður Hannesson, framkvæmdastjóri SI
- Nýsköpun eða framleiðsla – Guðbjörg Heiða Guðmundsdóttir, framkvæmdastjóri Marel á Íslandi
- Árangur í umhverfis- og loftslagsmálum – Ingibjörg Steinunn Ingjaldsdóttir, starfandi stjórnarformaður, Prentmet Oddi
- Loftslagsmál – framtíðarsýn – Þorsteinn Hannesson, framkvæmdastjóri sérverkefna hjá Elkem Ísland
- Umhverfisvandamál eða viðskiptatækifæri? – Sunna Gunnars Marteinsdóttir, markaðsstjóri MS
- Sjálfbær framleiðsla framtíðarinnar? – Guðlaug Kristinsdóttir, stjórnarformaður, Límtré Vírnet
- Minni losun - meiri hagsæld – Eggert Benedikt Guðmundsson, forstöðumaður Grænvangs
- Horft til framtíðar – umræður – Halldór Þorgeirsson, formaður Loftslagsráðs, Einar Snorri Magnússon forstjóri CCEP, Ingólfur Guðmundsson, forstjóri CRI, Guðbjörg Heiða Guðmundsdóttir, framkvæmdastjóri Marel á Íslandi og Guðbjörg Hrönn Óskarsdóttir, framkvæmdastjóri Álklasans