Í umsögn Samtaka iðnaðarins um þau frumvörp sem kynnt hafa verið til að bregðast við COVID-19 veirunni kemur fram að samtökin telji nauðsynlegt að ráðist sé þegar í stað í 30-35 milljarða króna viðbótarframkvæmdir í samgöngum og byggingum hins opinbera.

Mikilvægt sé að afgreiða frumvarp um samvinnuverkefni í vegakerfinu sem fyrst til að flýta framkvæmdum. Þá sé nauðsynlegt að koma hlutdeildarlánum á sem allra fyrst og auka endurgreiðslur til kvikmyndaiðnaðarins. Sigurður Hannesson er framkvæmdastjóri SI.

Nánar er fjallað um málið í Viðskiptablaðinu. Áskrifendur geta nálgast blaðið undir Tölublöð , aðrir geta skráð sig í áskrift hér .