Samtök iðnaðarins (SI) skora á þá sem standa fyrir verklegum framkvæmdum að taka ekki skyndiákvarðanir um stöðvun framkvæmda eða frestun þeirra sem nú eru í burðarliðnum. Það geri illt verra við þær aðstæður sem nú ríki.

Þetta kemur fram í tilkynningu frá SI.

Í bréfi sem sent hefur verið til verkkaupa, ríkis, sveitarfélaga, stærri fyrirtækja og stofnana segir að ekki sé skynsamlegt að auka við óvissu og ýta undir óróa sem geti leitt til rekstrarstöðvunar fyrirtækja og uppsagna starfsfólks. Ábyrgð ríkis og sveitarfélaga sé mikil í þessum efnum.

Samstaða þurfi að vera um að samdráttur verði ekki meiri en efni standi til. Halda þurfi áfram þar til línur skýrist í efnahagsmálum þjóðarinnar og skýrara verði hvert stefni.