Velta á fasteignamarkaði á höfuðborgarsvæðinu jókst nokkuð á milli vikna í síðustu viku og var sú veltumesta á þessu ári.

Þannig nam veltan í síðustu viku 2.440 milljónum króna samkvæmt tölum frá Fasteignaskrá Íslands, samanborið við 2.028 milljónir króna veltu í vikunni á undan og jókst um 20% á milli vikna.

Fjögurra vikna meðalvelta jókst einnig nokkuð á milli vikna og hefur aldrei verið hærri frá því í byrjun janúar. Þannig nam fjögurra vikna meðalvelta 2.143 milljónum króna í lok síðustu viku, samanborið við 1.848 milljónir í vikunni á undan.

Fjögurra vikna meðalvelta  hefur nú hækkað um 544 milljónir króna á fjórum vikum.

Til að sjá betur heildarmyndina af fasteignamarkaðir má sjá þróun fjögurra vikna meðalveltu á milli ára á myndinni hér að ofan. Þar sést að fjögurra vikna meðalvelta hefur hækkað um 59% á milli ára, en á sama tíma í fyrra hafði fjögurra vikna meðalvelta dregist saman um 52% milli ára.

Tólf vikna meðalvelta jókst á milli vikna í síðustu viku eða um 93 milljónir króna, og nemur nú 1.740 milljónum króna. Þá hefur 12 vikna meðalvelta ekki verið hærri frá því í byrjun febrúar sl.

Þá má skoða meðalveltu á viku síðustu 12 mánuði en hún er nú 1.583 milljónir króna á viku og hefur aukist um 31% á milli ára.

Í þessari viku:

Alls var 71 kaupsamningi þinglýst í síðustu viku, samanborið við 72 samninga í vikunni á undan. Alls var 39 samningum þinglýst að meðaltali á síðasta ári en 51 samningi að meðaltali á viku það sem af er þessu ári þannig að fjöldi samninga síðustu vikur er töluvert yfir meðaltali.

Meðalupphæð á hvern samning hækkaði nokkuð á milli vikna og nam í síðustu viku 34,4 milljónum króna, samanborið við 28,2 milljónir króna í vikunni á undan. Meðalupphæð á hvern samning á síðasta ári var 34,6 milljónir króna en það sem af nemur þessu ári nemur meðalupphæðin 28,8 milljónum króna og hefur því lækkað nokkuð.