Turninn víðfræði Big Ben er meðal helstu kennileita Lundúna. Samkvæmt tilkynningu sem breska þingið sendi frá sér í vikunni mun turninn hins vegar von bráðar hljóta nýtt nafn. Nýja nafnið verður Elizabeth Tower, eða Elísubetarturn, og er nafnið virðingarvottur við drottninguna sem nú hefur verið við völd í 60 ár.

Í tilkynningunni segir að þingið hafi fagnað hugmyndinni en enn hefur ekki verið kynnt hvenær nafnabreytingin fer fram. Fyrr í mánuðunum voru fjögurra daga hátíðarhöld í tilefni 60 ára krýningarafmælisins sem hefðinni samkvæmt er nefnt demantsafmæli.