Í tekjublaði Frjálsrar verslunar sem kom út fyrir tæpum tveimur vikum má lesa um tekjur 3.725 Íslendinga úr öllum geirum íslensks atvinnulífs og víðs vegar af landinu.

Blaðið er 88 blaðsíður að lengd en könnunin byggist á álögðu úsvari eins og það birtist í álagningarskrám Ríkisskattstjóra fyrir árið 2017.

Þeim sem birtast í blaðinu er skipt í 21 flokk eftir atvinnugreinum það er:

  • Forstjórar í fyrirtækjum
  • Starfsmenn fjármálafyrirtækja
  • Ýmsir menn úr atvinnulífinu
  • Næstráðendur og fleiri
  • Forseti, alþingismenn og ráðherrar
  • Sveitastjórnarmenn
  • Hagsmunasamtök og aðilar vinnumarkaðarins
  • Embættismenn og forstjórar ríkisfyrirtækja
  • Lögfræðingar
  • Endurskoðendur
  • Læknar og tannlæknar
  • Flugfólk
  • Verkfræðingar og aðrir sérfræðingar
  • Prestar
  • Auglýsingafólk
  • Listamenn
  • Íþróttamenn og þjálfarar
  • Fjölmiðlamenn
  • Skólamenn
  • Sjómenn og útgerðarmenn
  • Hjúkrunarfræðingar