Sif Cosmetics ehf, sem framleiðir BIOEFFECT húðvörurnar, hefur breytt um nafn og mun héðan í frá heita BIOEFFECT ehf. Þetta kemur fram í tilkynningu frá fyrirtækinu.

Þar segir Kristinn D. Grétarsson, forstjóri fyrirtækisins, að nafnabreytingin sé eðlilegt framhald á velgengni BIOEFFECT varanna á erlendum mörkuðum og það sé eðlileg þróun að fara í þessar breytingar hér á heimamarkaði. Þá sé ákveðin hagræðing falin í því að vera með sama vörumerki hér heima og erlendis.

BIOEFFECT er dótturfyrirtæki ORF Líftækni en húðvörur fyrirtækisins voru fyrst kynntar á erlendum markaði í Lundúnum í desember árið 2010. Að sögn fyrirtækisins hafa vörurnar farið sigurför um heiminn undanfarin fimm ár og ku BIOEFFECT vera orðið eitt þekktasta íslenska vörumerkið á almennum neytendamarkaði erlendis.

Fram kemur í tilkynningunni að yfir 1.000 greinar hafi verið skrifaðar um BIOEFFECT í mörgum virtustu tískutímaritum heims, m.a. Vogue, ELLE og Marie Claire. Þá hefur BIOEFFECT hlotið ýmis virt verðlaun í alþjóðlega snyrtivörugeiranum og var nýlega í fimmta sæti Madame Figaro yfir bestu snyrtivörur í heimi.

EGF frumuvakinn í BIOEFFECT húðvörunum er framleiddur með erfðatækni í byggi í gróðurhúsi ORF Líftækni í Grindavík. Nafnið BIOEFFECT endurspeglar sérstöðu varanna þar sem fyrri hluti orðsins vísar til einstaks uppruna í líftækni (biotechnology) og seinni hlutinn í einstaka virkni (effect).