Sigfús Ragnar Oddsson hefur verið ráðinn til Eyris, eftir brotthvarf Guðbjargar, sem sérfræðingur í eignaumsýslu og fyrirtækjagreiningu. Sigfús kemur til Eyris frá skilanefnd Landsbanka Íslands hf. þar sem hann hefur starfað á fyrirtækjasviði við eigna- og lánastýringu sem fólst meðal annars í fjárhagsstýringu fyrirtækja í eigu bankans og sölu eigna.

Áður starfaði Sigfús í Fyrirtækjaráðgjöf Landsbankans, í London og Reykjavík, við ráðgjöf í samrunaog yfirtökum fyrirtækja. Sigfús er verkfræðingur auk þess að vera með réttindi í fyrirtækjaráðgjöf frá FSA í Bretlandi.

Hann er 33 ára, trúlofaður Eddu Björk Agnarsdóttur og eiga þau eins árs dóttur.