Siggeir Vilhjálmsson hefur tekið við starfi forstöðumanns Viðskiptalausna á Einstaklingssviði Landsbankans og verður hann jafnframt staðgengill framkvæmdastjóra sviðsins. Siggeir mun leiða þróun og hagnýtingu stafrænnar tækni í einstaklingsviðskiptum með það að markmiði að efla þjónustu bankans.

Siggeir lauk prófi í kerfisfræði frá Tölvuháskólanum (TVÍ) árið 1998,  B.Sc.-gráðu í tölvunarfræði með viðskiptafræði sem aukagrein frá Háskólanum í Reykjavík árið 2001 og MBA-gráðu frá Háskóla Íslands árið 2008. Siggeir hefur verið forstöðumaður á Fyrirtækjasviði Landsbankans frá árinu 2010 og undanfarin ár hefur hann stýrt Viðskiptalausnum fyrirtækja. Siggeir hóf störf við hugbúnaðargerð hjá Landsbankanum árið 1998 en hefur að mestu unnið við vöruþróun og viðskiptastýringu hjá bankanum frá árinu 2008.