Sighvatur Björgvinsson, fyrrverandi ráðherra, gagnrýni hugmyndir Lilju Mósesdóttur í aðsendri grein í Fréttablaðinu í dag undir yfirskriftinni "Látum börnin borga."
Sighvatur líkir hugmyndum Lilju við skuldaniðurfellingu með aukinni peningaprentun við rússneska rúllettu en í greininni segir orðrétt: "Mörg tilbrigði hafa verið samin við þessi stef – enda skortir fólkið ekki hugkvæmnina! Eitt nýjasta tilbrigðið er samið af doktor í hagfræðum sem jafnframt hefur kennt við háskólann. Henni, því þetta er kona, datt í hug að búa til nýja útgáfu af rússneskri rúllettu. Hún er þannig að prenta á massa af seðlum, senda þá úr prentsmiðju gegnum Seðlabankann í sjóð, þaðan inn til skuldaranna, frá þeim í bankana og þaðan aftur í Seðlabankann. Með þessari útgáfu af rússneskri rúllettu segir doktorinn að hægt sé að gera allt fyrir alla án þess að það kosti nokkurn nokkuð." Hann segir alveg öruggt að sé þessi rúlletta spiluð lendi byssukúlan í hausnum á skattborgaranum. "Í augum doktorsins kostar það svo sem ekki neitt. Í augum hans er skattborgarinn séríslensk auðlind, sem er þar að auki ókeypis," skrifar Sighvatur og á við Lilju þegar hann nefnir doktorinn.
Sighvatur skýtur einnig föstum skotum að Háskóla Íslands en hann segir að ef svona rúllettur séu kenndar í viðskipta- og hagfræðideild HÍ sé ekki undarlegt að fólk útskrifað þaðan hafi sett landið á höfuðið á aðeins fjórum árum.