Sigmar Vilhjálmsson, kunnur fyrir störf sín sem sjónvarps- og útvarpsmaður, hefur verið ráðinn sem sölu- og markaðsstjóri Tals, að því er fram kemur í fréttatilkynningu.

Sigmar kemur til Tals frá Landsbankanum þar sem hann starfaði sem verkefnastjóri í kortadeild á Sölu- og markaðssviði bankans.

Áður starfaði Sigmar hjá 365 miðlum og sinnti þar ýmsum verkefnum, þar á meðal sem sölustjóri Áskriftadeildar og forstöðumaður Sértekjudeildar.