Forsætisráðuneytinu hefur verið afhentur nýr Mercedes-Benz S350d. Gengið var frá kaupunum í október. Eldri bíll forsætisráðherra var af gerðinni BMW 730Li en hann var orðinn nánast óökufær vegna mikilla bilana.

Samkvæmt upplýsingum Viðskiptablaðsins fær forsætisráðuneytið bílinn á 12,8 milljónir króna.  Listaverð S-bílsins er um 22 milljónir samkvæmt verðlista Bílaumboðsins Öskju, umboðsaðili Mercedes-Benz á Íslandi, en bílaframleiðendur veita almennt verulega afslætti af bílum til þjóðarleiðtoga.

S-Class er flaggskip þýska lúxusbílaframleiðandans. Mercedes-Benz af þessari gerð hefur ekki verið í þjónustu forsætisráðuneytisins frá árinu 1978, eða í 36 ár. Þá var Geir Hallgrímsson forsætisráðherra.

Hér má sjá umfjöllun í sjónvarpi Viðskiptablaðsins af bíl sömu gerðar.