Sigmundur Davíð Gunnlaugsson, formaður Framsóknarflokksins og fv. forsætisráðherra, mun að öllu óbreyttu taka að nýju sæti á Alþingi á næstu dögum, þetta kemur fram í Morgunblaðinu í dag .
Í samtali við blaðið segir varaþingmaður Sigmundar, Hjálmar Bogi Hafliðason, að þingsetan hafi átt að vera þrjár vikur hið minnsta en þær verði sjö. Hann segist búast við því að setu hans ljúki um næstu helgi.