„Það er niðurstaða mín að hefja nú formlegar stjórnarmyndunarviðræður á milli Framsóknarflokks og Sjálfstæðisflokks. Ég met undirbúningssamtöl mín við formann Sjálfstæðisflokksins svo að góður vilji sé til þess af hans hálfu að vinna að útfærslu á aðgerðum vegna skuldamálanna með árangur fyrir heimilin í forgrunni lausnanna. Verði í því augnamiði horft til þeirra hugmynda að lausn sem Framsókn hefur unnið að og kynnt og jafnframt og um leið til þeirra útfærslna sem Sjálfstæðisflokkurinn hafði lagt áherslu á, sem leið að sama marki,“ segir Sigmundur Davíð Gunnlaugsson, formaður Framsóknarflokksins, í yfirlýsingu sem send var fjölmiðlum í dag.

Sigmundur Davíð segir samtöl sem hann hefur átt við forystumenn stjórnmálaflokka gagnleg. Þá hafi hann notað tímann, frá því að forseti Íslands veitti honum umboð til þess að hefja stjórnarmyndunarviðræður, til þess að fara yfir og rifja upp helstu áhersluatriði flokkanna í kosningabaráttunni.

„Af hálfu míns flokks hef ég lagt áherslu á þau mál sem flokkurinn setti í forgang fyrir kosningar, einkum leiðréttingu á skuldum heimilanna. Auk þess hafa ýmis önnur mál verið reifuð. Þótt skoðanir séu skiptar um sumt, eins og vænta mátti, er mikill samhljómur í afstöðu flokka til margra mála. Það gefur von um að stjórnmálamenn ólíkra flokka muni geta sameinast um ýmis framfaramál á kjörtímabilinu.“

Enn fremur segir í yfirlýsingunnI:

„Eins og ég hef lagt áherslu á má tengja lausn þessara mála þeirri staðreynd að kröfuhafar í bú föllnu bankanna verða að sæta afföllum af kröfum sínum. Líkur standa til að fyrrgreindum aðilum sé þessi staða ljós. Ekki er því stefnt að því að endurreisn heimilanna valdi ríkissjóði búsifjum sem hann má ekki við.

Margvísleg önnur mál bíða úrlausnar á kjörtímabilinu, mál sem geta haft mikil áhrif á velferð þjóðarinnar í bráð og lengd. Því er eðlilegt að leitast verði við, a.m.k. í fyrstu atrennu, að mynda stjórn með nægjanlega öflugan þingmeirihluta til að ríkisstjórn sem við hann styðst hafi afl til að sinna óvenju vandasömum verkum. Einnig er sjálfsagt við upphaf formlegra stjórnarmyndunarviðræðna að hafa ríka hliðsjón af þeim skilaboðum sem lesa má úr niðurstöðum nýafstaðinna kosninga.“