Í stefnuyfirlýsingu ríkisstjórnarinnar er tekið fram að einfalda þurfi regluverk með það að markmiði að innleiða engar nýjar reglur án þess að losa í burtu aðrar. Sigmundur Davíð Gunnlaugsson forsætisráðherra segir að fyrirhugaðar aðgerðir séu nú bornar undir sérfræðingana sem eru komnir til landsins.