Forsætisráðherra segir að upplýsingar sem hafi átt að nota til fjárkúgunar hafi reynst byggðar á sögusögnum og getgátum. Þetta kemur fram í bréfi frá ráðherranum.

„,Fyrir fáeinum dögum barst bréf á heimili fjölskyldu minnar, í umslagi merktu eiginkonu minni. Í bréfinu var því hótað að birtar yrðu opinberlega upplýsingar sem reynast myndu skaðlegar ef ég greiddi ekki milljónir króna til bréfritara og samverkamanns hans," segir í bréfinu.

„Umfjöllun yrði öll hin versta"

„Af bréfinu að dæma virtust umræddar upplýsingar byggja á getgátum og sögusögnum. Áréttað var í bréfinu a ð ef ekki yrði gengið að kröfunum, eða ef lögreglu yrði gert viðvart, yrði séð til þess að fjölmiðlar fengju málið til umfjöllunar og sagðist bréfritari geta tryggt að sú umfjöllun yrði öll hin versta."

„Ég gerði lögreglu að sjálfsögðu strax viðvart og leysti hún málið af mikilli fagmennsku. Ég vil færa lögreglunni kærar þakkir fyrir vel unnin störf. Vegna frétta sem birst hafa um máli ð í dag með vísan til hótananna er rétt að taka fram að ég hef engin fjárhagsleg tengsl við Björn Inga Hrafnsson, né hef ég komið að kaupum Vefpressunnar á DV á nokkurn hátt."

Forsætisráðherra biður fjölmiðla að sýna fjölskyldu sinni aðgát vegna málsins. Hann segist jafnframt ekki munu veita viðtal vegna málsins að svo stöddu.