Sigmundur Davíð Gunnlaugsson forsætisráðherra ávarpaði í dag fjárfestingaráðstefnuna Iceland Investment Forum  í Lundúnum. Í ræðu sinni útlistaði hann helstu áhersluþætti í efnahags- og fjárfestingastefnu ríkisstjórnarinnar, m.a. þau eru snúa að umhverfi efnahags- og fjármála á Íslandi og auknum möguleikum til fjárfestinga.

Fram kemur í tilkynningu frá forsætisráðuneytinu að í tengslum við ráðstefnuna hafi forsætisráðherra veitt erlendum fjölmiðlum á annan tug viðtala.

Í gær átti Sigmundur fund með William Hague utanríkisráðherra Bretlands. Þar ræddu þeir um aukna samstarfsfleti í samskiptum ríkjanna, þar á meðal á sviði orkumála, viðskipta og menntamála. Einnig voru Evrópumál rædd, málefni norðurslóða og staða mála í makríldeilunni. Forsætisráðherra mun síðar í dag heimsækja breska þingið og á morgun eiga fundi með framámönnum í Liberal International.