Sigmundur Ólafsson, framkvæmdastjóri Norðlenska á Akureyri, mun innan tíðar láta af störfum. Í tilkynningu frá fyrirtækinu kemur að ákvörðunin sé sameiginleg. Mun Sigmundur halda áfram störfum þar til arftaki hans hefur verið ráðinn.

„Sigmundur var ráðinn inn til Norðlenska árið 2001 og hefur stýrt félaginu í gegnum mikla uppbyggingu og náð að samþætta rekstur nokkurra félaga í eitt stórt og öflugt félag. Nú er hins vegar komið að því að leiðir skilji.  Stjórn félagsins þakkar Sigmundi fyrir gott starf. Hann hefur verið öflugur framkvæmdastjóri sem hefur ekki eingöngu sett mark á félagið heldur á geirann í heild sinni. Ég óska honum alls hins besta í framtíðinni,“ segir Heiðrún Jónsdóttir, stjórnarformaður Norðlenska.

Sjálfur gengur Sigmundur sáttur frá borði. Segir hann: „Ég stend sáttur upp úr stól framkvæmdastjóra og lít til baka með stolti eftir að hafa skapað, með sterkum og samhentum hópi starfsfólks, öflugt og stórt matvælafyrirtæki. Ég vil þakka stjórn félagsins, eigendum og innleggjendum, svo og frábæru samstarfsfólki mínu fyrir gott samstarf. Ég er sannfærður um að þau munu halda áfram að gera gott félag enn betra.“

Norðlenska var stofnað á grunni Kjötiðnaðarstöð KEA árið 2000 er hún var sameinuð Kjötiðjunni á Húsavík. Í kjölfarið keypti félagið þrjár kjötvinnslur Goða hf. Á Akureyri eru höfuðstöðvar fyrirtækisins, stórgripasláturhús og kjötvinnsla, á Húsavík er sauðfjársláturhús og kjötvinnsla, á Höfn er sauðfjársláturhús og í Kópavogi er söluskrifstofa.

Eigandi Norðlenska er Búsæld, félag kjötframleiðenda í Eyjafirði, Þingeyjarsýslum og á Austur- og Suðausturlandi. Ársvelta Norðlenska árið 2014 var um 5.200 m.kr. Hjá fyrirtækinu eru um 195 stöðugildi að meðaltali.