Sigmundur Davíð Gunnlaugsson forsætisráðherra steig rétt í þessu út frá Bessastöðum, bústaði forsetans, Ólafs Ragnars Grímssonar. Hann ræddi við Ólaf um stöðu mála í stjórnmálum eins og þau standa, en vildi ekki tjá sig við fréttamenn að svo stöddu.

Spurður um hvort verði þingrof á Alþingi sagði Sigmundur: „Við sjáum til með þetta allt saman," meðan hann braut sér leið gegnum þvögu blaðamanna til bíls síns. Þegar hann steig inn í bifreiðina endurtók hann athugsasemdina þegar hann sagði „Við sjáum til, bless bless," og kvaddi fjölmiðlafólkið.

Ólafur Ragnar Grímsson mun koma fram innan skamms og tjá sig um stöðu mála við fjölmiðla.