Sigurður Ingi Jóhannsson verður nýr forsætisráðherra ef tillaga Framsóknarflokksins við Sjálfstæðismenn verður samþykkt af Sjálfstæðismönnum.

Sigmundur Davíð verður ennþá formaður Framsóknarflokksins, jafnvel þótt tillaga þingflokksins nái í gegn og Sigurður Ingi verði forsætisráðherra.

Sigurður Ingi sagði frá þessari tillögu Framsóknarflokksins að loknum þingflokksfundi Framsóknar rétt í þessu.