Dómsmálaráðuneytið hefur sent frá sér tilkynningu um að í dag 2. febrúar klukkan 13:15 verði blaðamannafundur í ráðuneytinu. Í tilkynningunni kemur fram að á fundinum muni Sigríður Á. Andersen dómsmálaráðherra kynna áform um eflingu löggæslunnar í landinu.

Einnig verður nýsamþykkt aðgerðaráætlun um meðferð kynferðisbrota í réttarvörslukerfinu kynnt en ríkisstjórnin hefur lagt sérstaka áherslu á framkvæmd hennar á komandi árum.

Ráðherra tekur við spurningum og verður til viðtals um málið að loknum fundi sé þess óskað segir í tilkynningunni.