Sigríður Lára Þorvaldsdóttir hefur verið ráðin í stöðu sérfræðings á fjármálasviði Eignaumsjónar vegna aukinna umsvifa í starfsemi félagsins, sem er sérhæft í þjónustu við húsfélög og rekstrarfélög. Sigríður Lára mun sinna jöfnum höndum þjónustu við ört vaxandi viðskiptavinahóp Eignaumsjónar og greiningavinnu fyrir stjórnendur.

Sigríður Lára er með B.Sc gráðu frá Háskóla Íslands í viðskiptafræði af reikningsskilasviði og stundar fjarnám í viðburðastjórnun við Háskólann á Hólum. Hún kemur til Eignaumsjónar frá fjármálasviði verkfræðistofunnar Mannvits. Þar áður starfaði hún hjá Borguni sem sérfræðingur í reikningshaldi.

Um Eignaumsjón hf.

Eignaumsjón hf. tók til starfa árið 2001 og starfar hérlendis í þjónustu við hús- og rekstrarfélög með það að markmiði að gera rekstur fasteigna markvissari og hagkvæmari. Félagið tók nýverið við allri starfsemi Húsastoðar og þjónustar nú hátt í 500 hús- og rekstrarfélög með nærri 12 þúsund íbúðum eða einingum. Starfsmenn eru 20 talsins og er félagið til húsa að Suðurlandsbraut 30 í Reykjavík.