Forsætisráðherra hefur skipað þriggja manna hæfnisnefnd í samræmi við ákvæði laga um Seðlabanka Íslands til að meta hæfni umsækjenda um embætti seðlabankastjóra. Þetta kemur fram í tilkynningu á vef Stjórnarráðsins .

Nefndina skipa Eyjólfur Guðmundsson, rektor Háskólans á Akureyri, tilnefndur af samstarfsnefnd háskólastigsins, Þórunn Guðmundsdóttir, hæstaréttarlögmaður og varaformaður bankaráðs, tilnefnd af bankaráði Seðlabanka Íslands og Sigríður Benediktsdóttir, hagfræðingur við Yale háskóla, sem skipuð er án tilnefningar og er jafnframt formaður nefndarinnar.

16 einstaklingar sóttu um embætti seðlabankastjóra . Ráðgert er að endanleg niðurstaða hæfnisnefndar liggi fyrir eigi síðar en 15. júní næstkomandi, og Katrín Jakobsdóttir forsætisráðherra mun síðan skipa í embættið frá og með 20. ágúst.