Sigríður Mogensen hefur verið ráðin sviðsstjóri hugverkasviðs Samtaka iðnaðarins og hefur hún störf á næstu mánuðum að því er segir í fréttatilkynningu frá samtökunum.

Sigríður hefur frá árinu 2015 starfað við áhættustýringu hjá Deutsche Bank í London. Fyrir þann tíma starfaði hún sem hagfræðingur hjá Samtökum atvinnulífsins og hagfræðingur á skrifstofu sérstaks saksóknara.

Þá hefur Sigríður einnig starfað sem fréttamaður á Stöð 2 og blaðamaður á Viðskiptablaðinu. Um árabil var hún aðstoðarkennari í fjármálum og hagfræði við Háskóla Íslands. Sigríður er hagfræðingur að mennt með BS gráðu frá Háskóla Íslands og MS gráðu í reikningshaldi frá London School of Economics.

Sigurður Hannesson, framkvæmdastjóri SI, segir ánægjulegt fyrir samtökin að fá Sigríði til starfa. „Markmið okkar er að festa hugverkasviðið í sessi sem eina af meginstoðunum í starfi Samtaka iðnaðarins enda mun framtíðarvöxtur að miklu leyti byggjast á hugviti og hagnýtingu þess í iðnaði,“ segir Sigurður.

Sigríður er metnaðarfullur og öflugur liðsmaður í hóp kraftmikilla starfsmanna SI. Hún er vel að sér um íslenskt atvinnulíf og þekkir þær áskoranir sem hugverka- og tæknifyrirtæki standa frammi fyrir.

Í störfum sínum fyrir Deutsche Bank í London öðlaðist Sigríður mikla reynslu af alþjóðlegu starfsumhverfi og kemur því með þekkingu sem nýtist vel okkar aðildarfyrirtækjum sem tilheyra hugverkasviði samtakanna.“