Sigríður J. Hjaltested og Þórður Clausen hafa verið skipuð í embætti dómara við Héraðsdóm Reykjavíkur. Þá hefur Sigríður Elsa Kjartansdóttir verið skipuð dómari við Héraðsdóm Vestfjarða. Hanna Birna Kristjánsdóttir skipaði í embættin í dag á grundvelli umsagnar dómnefndar um hæfi þeirra. Embættin voru auglýst laus til umsóknar þann 6. júní síðastliðinn.