Sigríður Rakel Ólafsdóttir hefur verið ráðin markaðsstjóri Bílaumboðsins Öskju. Hún kemur til Öskju frá Ölgerðinni þar sem hún hefur undanfarin ár starfað sem vörumerkjastjóri og bar þar ábyrgð á vörumerkjum PepsiCo í gosi og snakki, þar á meðal Pepsi Max, Lay‘s og Doritos.

Sigríður Rakel starfaði einnig um árabil sem markaðsstjóri Cintamani og áður vörumerkjastjóri hjá Halldóri Jónssyni. Sigríður er með B.Sc. gráðu frá Háskóla Íslands í sálfræði og stundaði einnig Msc. nám í markaðsfræðum og alþjóðaviðskiptum við sama skóla.

„Það er afar spennandi að koma til starfa hjá jafn stóru og öflugu bílaumboði sem Askja er. Það eru miklar og áhugaverðar breytingar á bílamarkaðinum með rafbílavæðingunni og mörgum nýjungum sem tengjast henni. Það eru einnig spennandi tímar hjá Öskju með sterk merki og nú hefur Smart rafbílamerkið einnig bæst við hjá okkur sem gerir breiddina enn meiri. Ég hlakka til að takast á við þessa nýju og spennandi áskorun að stýra markaðsmálum Öskju,“ segir Sigríður Rakel.

Askja er umboðsaðili á Íslandi fyrir Mercedes-Benz, Kia og Honda. Í fréttatilkynningu segir að markaðshlutdeild Öskju hafi verið sú hæsta frá upphafi á árinu 2021 og var Askja þá annað stærsta bílaumboð hér á landi um leið og Kia var söluhæsta tegundin á Íslandi í flokki fólksbíla.

„Það hefur gengið vel hjá Öskju undanfarin misseri og við höfum byggt upp gott teymi sem vinnur við að þjónusta fólk og fyrirtæki á sviði fólks- og atvinnubíla. Askja hefur meðal annars náð góðum árangri í sölu rafbíla og um leið hefur fyrirtækið innleitt ISO 14001 umhverfisstaðalinn sem setur okkur skýr markmið um nálgun okkar á umhverfið. Við stefnum áfram á sömu braut og erum því ánægð að fá Sigríði til liðs við okkur og halda áfram áherslum okkar á umhverfismál og um leið rafbílavæðingu,“ segir Jón Trausti Ólafsson, framkvæmdastjóri Öskju.