Sigríður Benediktsdóttir, framkvæmdastjóri fjármálastöðugleikasviðs Seðlabankans, hefur verið skipuð í nýstofnað kerfisáhætturáð Danmerkur.

Fram kemur í tilkynningu frá Seðlabankanum að það er Annette Vilhelmsen, atvinnu- og nýsköpunarráðherra Danmerkur, sem skipar kerfisáhætturáðið. Það er skipað 10 einstaklingum, þ.e. fulltrúum Seðlabanka Danmerkur, Fjármálaeftirlits Danmerkur, ráðuneyta á sviði efnahags-, atvinnu- og fjármála og óháðum sérfræðingum. Sigríður er skipuð í ráðið sem slíkur. Seðlabankastjóri Danmerkur er formaður ráðsins.

Hlutverk kerfisáhætturáðs Danmerkur er að greina og hafa eftirlit með fjárhagslegum áhættuþáttum í Danmörku, vara við hættu á því að kerfisáhætta sé að myndast, koma með tillögur til ríkisstjórnar um lagabreytingar á sviði fjármála sem geta dregið úr því að kerfisáhætta myndist og gefa skýrslu til Kerfisáhætturáðs Evrópu (ESRB).

Sigríður Benediktsdóttir hóf störf í Seðlabanka Íslands fyrir rúmu ári, eða 1. janúar 2012, en þar áður var hún aðstoðarmaður deildarforseta við hagfræðideild Yale-háskóla í Bandaríkjunum. Sigríður lauk BS-prófi í hagfræði í Háskóla Íslands 1995 og BS-prófi í tölvunarfræðum frá sama skóla 1998. Hún lauk doktorsprófi í hagfræði frá Yale-háskóla í maí 2005.