Utanríkisráðherra hefur Sigríði Önnu Þórðardóttur, fyrrverandi ráðherra og alþingismann, sendiherra í utanríkisþjónustunni.

Auk hennar hefur ráðherra skipað Grétu Gunnarsdóttur, sviðsstjóra alþjóða- og öryggissviðs og Þóri Ibsen, skrifstofustjóra varnarmálaskrifstofu.

Skipun Grétu og Þóris miðast við 15. þessa mánaðar og skipun Sigríðar Önnu miðast við 1. júlí nk. Einn sendiherra mun láta af embætti á þessu ári og fyrir liggur að á næsta ári muni fimm til sjö sendiherrar til viðbótar láta af embættum.

Þetta kemur fram í tilkynningu frá utanríkisráðuneytinu.