Sigríður Hrólfsdóttir, framkvæmdastjóri fjármála og fjárfestinga hjá Tryggingamiðstöðinni hf., hefur sagt starfi sínu hjá félaginu lausu.  Hún mun láta af störfum um mánaðamótin janúar febrúar næstkomandi þegar ársuppgjör félagsins liggur fyrir, að því er fram kemur í tilkynningu til Kauphallarinnar.

Sigurður Viðarsson, forstjóri TM, hefur tekið við verkefnum Sigríðar á sviði TM fjárfestinga og Óskar B. Hauksson, framkvæmdastjóri rekstrarsviðs TM, mun taka við verkefnum er lúta að fjármálum.