Sigríður Á. Andersen héraðsdómslögmaður tekur þátt í prófkjöri Sjálfstæðismanna í Reykjavík í næsta mánuði og mun sækjast eftir stuðningi flokksmanna í eitt af efstu sætum.

Þetta kemur fram í tilkyningu frá Sigríði.

Sigríður er 37 ára Reykvíkingur og starfar við lögmennsku. Hún hefur gegnt ýmsum trúnaðarstörfum fyrir Sjálfstæðisflokksins frá unga aldri, m.a. setið í miðstjórn flokksins og gegnt formennsku í einu af sjálfstæðisfélögunum í Reykjavík.

Sigríður skipaði 5. sæti á lista Sjálfstæðisflokksins í Reykjavíkurkjördæmi norður við kosningarnar árið 2007. Hún er nú 1. varaþingmaður flokksins í kjördæminu og hefur einu sinni tekið sæti á Alþingi, um miðjan október sl.

„Að mínu mati verða meðal brýnustu verkefna stjórnvalda næstu misserin að endurskoða peningamálastefnuna og áherslur í ríkisfjármálum,“ segir í tilkynningu frá Sigríði.

„Þá er afar mikilvægt að skýr stefna liggi fyrir um að koma þeim fyrirtækjum sem lent hafa í fangi ríkisins undanfarið aftur í hendur einkaaðila. Á þessum þáttum hef ég ákveðnar skoðanir sem ég tel eiga hljómgrunn meðal sjálfstæðismanna.“

Þá segir Sigríður að flokksmenn hafi kallað eftir endurnýjun á framboðslistum um allt land.

„Aðstæður hjá okkur sjálfstæðismönnum í Reykjavík nú eru þær að fyrir liggur að endurnýjun þarf í forystu flokksins í Reykjavík fyrir næstu kosningar. Ég er tilbúin til þess að leggja mitt af mörkum í þeim efnum með því að gefa kost á mér í eitt af efstu sætunum,“ segir Sigríður.   Eiginmaður Sigríðar er Glúmur Jón Björnsson efnafræðingur og eiga þau eina dóttur og von á annarri á næstu dögum.

Sigríður vísar í tilkynningunni á heimasíðu sína, www.sigridurandersen.is þar sem nálgast má frekari upplýsingar hana og stefnumál hennar og áherslur í efnahagsmálum næstu missera.