Sigrún Magnúsdóttir var í morgun kjörin þingflokksformaður á þingflokksfundi Framsóknar. Með henni í stjórn þingflokksins eru Þórunn Egilsdóttir, varaformaður og Ásmundur Einar Daðason, ritari.

Fram kemur í tilkynningu að þingmenn Framsóknarflokksins ætli að leggja það til á fundi sínum síðar í dag að Silja Dögg Gunnarsdóttir verði fyrsti varaforseti þingsins og Vigdís Hauksdóttir formaður fjárlaganefndar.

Þá er lagt til að Frosti Sigurjónsson verði formaður í efnahags- og viðskiptanefnd og Höskuldur Þórhallsson formaður umhverfis og samgöngunefndar.