Sigrún Íris Sigmarsdóttir hefur verið ráðin innheimtustjóri hjá Odda úr hópi rúmlega 200 umsækjenda.

Sigrún Íris er viðskiptafræðingur frá Háskólanum í Reykjavík og hefur starfað sem viðskiptastjóri hjá Advania undanfarið, en var þar á undan viðskiptastjóri hjá Motus, þjónustustjóri og gjaldkeri hjá lögfræðiþjónustunni Veitu og þjónustufulltrúi hjá SPRON.