Sigrún Ósk Sigurðardóttir, aðstoðarforstjóri ÁTVR, kemur ný inn í stjórn Símafélagsins. En fjórir stjórnarmenn voru endurkjörnir í stjórn félagsins á aðalfundi þess í gær. Þetta kemur fram í tilkynningu.

Stjórnina skipa auk Sigrúnar Óskar þau Friðrik Þór Snorrason, forstjóri Reikistofu bankanna, Hans Pétur Jónsson, fyrrverandi sölustjóri Opinna Kerfa, og Sigurður G Guðjónsson hæstaréttarlögmaður og Hulda Björk Pálsdóttir, sviðstjóri bókhalds og innheimtu hjá Olíudreifingu, en hún var kjörin stjórnarformaður félagsins.

Brjánn Jónsson, framkvæmdastjóri Símafélagins.segir mikla ánægju hafa verið meðal hluthafa Símafélagsins með störf stjórnarinnar á síðasta ári. Það hafi verið heillavænlegt að öllu leyti að ráða utanaðkomandi sérfræðinga í stjórn félagsins og nú hafi enn einn öflugur liðsmaður bæst í hópinn.

Ársreikningur Símafélagsins sýndi jákvæða rekstrarafkomu árið 2013, jákvætt eigið fé og mikinn vöxt milli ára. Símafélagið hóf starfsemi 1. nóvember 2008 og hefur á þeim tíma byggt upp öflugt grunnnet á höfuðborgarsvæðinu, Suðurnesjum, Selfossi, Akureyri og víða á Norðausturlandi. Símafélagið rekur nú eitt af þremur stærstu fjarskiptakerfum landsins.