Sigrún Jónsdóttir hefur verið ráðin framkvæmdastjóri á skrifstofu forstjóra Tryggingastofnunar Ríkisins og gegnir hún jafnframt stöðu staðgengils forstjóra. Helstu verkefni Sigrúnar eru tengsl og samskipti við hagsmunaaðila utan stofnunarinnar, áætlanagerð, birting upplýsinga um starfsemina og samskipti við fjölmiðla og Alþingi.

Sigrún hefur starfað hjá TR frá því í apríl 2019 en áður var hún kennslustjóri Háskólans á Bifröst í fjögur ár. Sigrún hefur starfað í Háskóla Íslands, í mennta- og menningarmálaráðuneytinu og var framkvæmdastýra Samfylkingarinnar.

Hún hefur reynslu og þekkingu af störfum á vettvangi velferðarmála en sem dæmi var hún fulltrúi í nefnd sem vann fyrstu áætlun stjórnvalda gegn ofbeldi á heimilum og kynbundnu ofbeldi, sem var birt árið 2006, og var á árunum 1991-1995 varamaður og síðar aðalfulltrúi í tryggingaráði.

Hún var bæjarfulltrúi í Kópavogi í 1998-2006 og sat á þeim árum m.a. í stjórn Sambands íslenskra sveitarfélaga. Sigrún var ein af stofnendum Kvennalistans árið 1983. Sigrún er með meistarapróf í opinberri stjórnsýslu frá Háskóla Íslands, og með kennsluréttindi og BA próf í stjórnmálafræði frá sama skóla.

„Þetta er spennandi starfsvettvangur þar sem ég mun leggja mig fram um að láta gott af mér leiða og hlakka sannarlega til að takast á við þau krefjandi verkefni sem starfið felur í sér,“ segir Sigrún.

„Velferðarmál hafa alltaf verið mér hugleikin og það er mjög ánægjulegt að fá að starfa hjá Tryggingastofnun sem er ein stærsta velferðarstofnun landsins og í raun eina sinnar tegundar. Við sinnum tæplega 70.000 viðskiptavinum í hverjum mánuði með afar fjölbreyttar þarfir í síbreytilegu lagaumhverfi svo það eru margar áskoranir sem tekist er á við í daglegum störfum hjá TR. Hér er öflugur hópur starfsfólks sem leggur sig fram um að þjónusta viðskiptavini sem allra best.“