Hagnaður VÍS á þriðja ársfjórðungi nam 950 milljónum króna sem er 26% aukning á milli ára. Rekstrarkostnaður lækkar á þriðja fjórðungi miðað við sama tíma í fyrra en samtals hefur rekstrarkostnaður á fyrstu níu mánuðum ársins hækkað um 83 milljónir.

VB Sjónvarp ræddi við Sigrúnu Rögnu Ólafsdóttur, forstjóra VÍS, að loknum uppgjörsfundi félagsins.