Stjórn Mannvits hefur ráðið Sigrúnu Rögnu Ólafsdóttur sem nýjan forstjóra félagsins. Sigrún Ragna var forstjóri VÍS frá 2011 til 2016. Hún var framkvæmdastjóri fjármála og reksturs hjá Íslandsbanka frá 2008 til 2011 og starfaði áður í um 20 ár hjá Deloitte og fyrirrennurum þess þar sem hún var einn af eigendum og stjórnarformaður.

Sigrún Ragna er viðskiptafræðingur frá Háskóla Íslands, löggiltur endurskoðandi auk þess sem hún lauk MBA námi frá Háskólanum í Reykjavík 2007. Hefur hún setið í stjórnum ýmissa fyrirtækja og samtaka, m.a. Viðskiptaráðs Íslands, Samtaka atvinnulífsins og Samtaka fjármálafyrirtækja.

Hefur störf 1. desember

Gert er ráð fyrir að Sigrún Ragna hefji störf hjá Mannviti þann 1. desember næstkomandi, en í fréttatilkynningu segist hún hlakka til að hefja störf. „[O]g fá tækifæri til að starfa í hópi frábærra starfsmanna við áframhaldandi uppbyggingu félagsins á sviði tæknilegrar þróunar og nýsköpunar,“ segir Sigrún Ragna.

Sigurður Sigurjónsson, stjórnarformaður Mannvits segist vera afar ánægður með að fá Sigrúnu Rögnu til liðs við fyrirtækið. „Sigrún Ragna býr að víðtækri stjórnunar- og leiðtogareynslu og við hlökkum til samstarfs við hana,“ segir Sigurður.

Um Mannvit

Mannvit er alþjóðlegt ráðgjafarfyrirtæki sem veitir margvíslega tæknilega þjónustu á sviði orku, iðnaðar og mannvirkja og er eitt stærsta fyrirtæki landsins á sviði tæknilegrar ráðgjafar og nýsköpunar. Fyrirtækið er ásamt dóttur- og hlutdeildarfélögum með starfsemi í Ungverjalandi, Þýskalandi, Noregi og Grænlandi auk Íslands.