Sigþór Jónsson lætur af störfum hjá dótturfélagi Kviku banka í Bretlandi nú um mánaðamótin, en hann hóf þar störf í ágúst í fyrra.

Hann hafði áður starfað sem framkvæmdastjóri Íslenskra verðbréfa, og þar áður framkvæmdastjóri Landsbréfa, auk starfa fyrir sjóðastýringarfyrirtækið Stefni.

Sigþór er með MSc. í fjármálum, og MBA frá EADA Business School, en hann vildi ekki gefa upp að svo stöddu hvað hann hygðist taka sér fyrir hendur næst.