Sigþór Jónsson hefur verið ráðinn framkvæmdastjóri Landsbréfa. Hann tekur við starfinu af Ara Skúlasyni. Þetta kemur fram í tilkynningu til Kauphallar.

Sigþór hefur gegnt starfi forstöðumanns hjá Stefni sjóðastýringafyrirtækis. Það er í eigu Arion banka.

Landsbréf er í eigu Eignarhaldsfélags Landsbankans.

Í tilkynningu frá Landsbankanum segir:

„Stjórn Landsbréfa hf., dótturfélags Landsbankans, hefur ráðið Sigþór Jónsson sem framkvæmdastjóra félagsins.

Sigþór Jónsson hefur mikla reynslu af íslenskum fjármálamarkaði og fjárfestingastarfsemi. Hann hefur undanfarið gegnt starfi forstöðumanns sérhæfðra fjárfestinga hjá Stefni hf. og meðal annars leitt uppbyggingu framtakssjóða Stefnis hf. í atvinnuhúsnæði og fyrirtækjum. Þar má helst nefna fjárfestingar í Sjóvá-Almennum tryggingum hf. og Högum hf.

Sigþór er viðskiptafræðingur frá Háskóla Íslands og hefur lokið prófi í löggildri verðbréfamiðlun. Sigþór tekur við starfi framkvæmdastjóra Landsbréfa hf. þegar fyrirtækið stendur á tímamótum. Honum er ætlað að leiða frekari uppbyggingu þess, viðskiptaþróun og markaðssókn í kjölfar þess að ákvörðun var tekin um að Landsbréf hf. tækju yfir rekstur Horns, fjárfestingarfélags hf.“