Sigþór Jónsson hefur verið ráðinn til starfa hjá Kviku Securities Ltd., dótturfélagi Kviku banka hf. í Bretlandi. Sigþór hefur yfirgripsmikla og langvarandi reynslu af fjármálamarkaði en hann starfaði á síðustu árum sem framkvæmdastjóri Íslenskra verðbréfa hf., og þar áður sem framkvæmdastjóri Landsbréfa hf., þar sem hann vann að uppbyggingu félaganna sem og fjölmargra verkefna á vegum þeirra.

Sigþór var einnig þar áður sjóðstjóri og forstöðumaður sérhæfðra fjárfestinga hjá Stefni hf. Hann hefur í sínum störfum haft umfangsmikla aðkomu að uppbyggingu sjóðastarfsemi sem og utanumhaldi um nokkur af stærstu verkefnum sem íslenskir fagfjárfestar hafa komið að.

Sigþór er með MSc. gráðu í fjármálum. Hann er nú að ljúka MBA námi hjá EADA Business School í Barcelona og mun koma til liðs við Kviku Securities í ágúst að námi loknu.