Sigurður Erlingsson, forstjóri Íbúðalánasjóðs, hefur óskað eftir því við stjórn sjóðsins að láta af störfum og hefur stjórnin fallist á beiðni hans. Þetta kemur fram í tilkynningu frá sjóðnum til Kauphallarinnar.

Fram kemur í tilkynningunni stjórn Íbúðalánasjóðs muni á næstunni auglýsa starf forstjóra laust til umsóknar og mun hann fá það hlutverk að leiða breytingar sem kunna að verða á starfsemi sjóðsins við breytta skipan húsnæðismála.

Þar til gengið hefur verið frá ráðningu nýs forstjóra mun staðgengill forstjóra, Gunnhildur Gunnarsdóttir, gegna störfum forstjóra og mun fráfarandi forstjóri verða henni til ráðgjafar.

„Ég tók við rekstri sjóðsins árið 2010 þegar sjóðurinn stóð frammi fyrir miklum áskorunum í kjölfar efnahagshrunsins. Með sterkari innviðum sjóðsins og öflugu stjórnendateymi hefur sjóðurinn náð góðum tökum á þessum viðfangsefnum. Ég er stoltur af því að meginmarkmið í stefnu- og starfsáætlun Íbúðalánasjóðs hafi náðst,“ segir Sigurður.